Verkefni fyrir Listasumar 2016

Ert þú með verkefni sem þú vilt framkvæma á Listasumar 2016? Listasumar hefst helgina 15. – 17. júlí og lýkur á Akureyrarvöku 26. - 28. ágúst. 

Auglýst er eftir verkefnum til að taka þátt í Listasumri 2016 um ræðir tvenna 300 þúsund króna styrki og fjóra 100 þúsund króna styrki. Skila þarf inn verkefnalýsingu og upplýsingum um umsækjendur.  Einnig er hægt að sækja um aðstöðu fyrir viðburði í Sal Myndlistarfélagsins. 

Umsóknum skal skilað í netfangið listasumar@listak.is. Umsóknarfrestur er til og með 27. apríl.