Vetrarlokun

Vetrarlokun stendur nú yfir á Listasafninu þar sem starfsmenn sinna árlegu viðhaldi og öðru tilheyrandi. Fyrsta opnun ársins 2016 verður laugardaginn 16. janúar kl. 15 þegar tvær sýningar opna í Listasafninu.

Í mið- og austursal safnsins sýnir Jón Laxdal undir yfirskriftinni …úr rústum og rusli tímans, en í vestursalnum opnar Samúel Jóhannsson sýninguna Samúel. Síðarnefnda sýningin er hluti af sýningaröð sem mun standa til 13. mars og inniheldur 4 stuttar sýningar. Aðrir sýnendur eru Jonna – Jónborg Sigurðardóttir, Baldvin Ringsted og Noemi Niederhauser. Þann 23. janúar verður svo sýningin í drögum / Prehestoric Loom IV opnuð í Listasafninu, Ketilhúsi en þar sýna 27 alþjóðlegir listamenn, þar af sjö íslenskir.