Vinna kvenna í 800 ár – vefnaður frá landnámi til miðalda

Vinna kvenna í 800 ár – vefnaður frá landnámi til miðalda
Michéle Hayeur Smith.

Fimmtudaginn 27. október, kl. 17 heldur fornleifa- og textílfræðingurinn Michéle Hayeur Smith fyrirlestur á vegum Minjasafnsins á Akureyri í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Vinna kvenna í 800 ár – vefnaður frá landnámi til miðalda. Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Aðgangur er ókeypis. 

Vefnaður var mikilvægur fyrir efnahag Íslands allt frá landnámi en ekki síður fyrir íslenskra konur. Ritaðar heimildir frá miðöldum og síðmiðöldum greina frá vefnaði og framleiðslu hans en hinar ríkulegu heimildir íslenskra fornleifa eru minna þekktar. Þær varpa aftur á móti óvæntu ljósi á ríkulegan arf af vinnu kvenna. Elstu efnisbútarnir frá landnámstíma sýna að íslenskar vefnaðarhefðir tvinna saman aðferðir frá Noregi og Bretlandseyjum. Úr þessum efniviði hefur fornleifa- og textílfræðingurinn Michéle Hayeur Smith frá Brown háskóla í Bandaríkjunum unnið viðamiklar rannsóknir undanfarin sex ár á íslenskum vefnaði. 

Fyrirlesturinn er haldinn af Minjasafninu á Akureyri í samvinnu við Norðurslóðanet Íslands og Listasafnið á Akureyri.