Fjölskylduleiðsögn á laugardaginn

Laugardaginn 14. október kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningum Rúrí, Jafnvægi-Úr Jafnvægi, og Friðgeirs Helgasonar, Stemning.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna. 

Skráning á heida@listak.is. Aðgangur er ókeypis.