Boreal Screendance Festival

Alþjóðleg dansvídeóhátíð
Boreal Screendance Festival
01.11.2024 – 10.11.2024
Listagilið

Boreal Screendance Festival er alþjóðleg dansvídeóhátíð sem haldin er á Akureyri. Fyrsta hátíðin fór fram í Mjólkurbúðinni í nóvember 2020, en nú teygir hún anga sína um allt Listagilið. Með Boreal skapast vettvangur til kynningar á dansvídeóum með það markmið að leiða saman innlent og erlent listafólk, byggja brýr heimsálfa á milli og hvetja til samstarfs.

Á hátíðinni eru sýnd metnaðarfull dansvídeó alls staðar að úr heiminum. Verkin eru sýnd á breiðtjöldum, þeim varpað á veggi, glugga og fleiri fleti sýningarrýma, en mikil áhersla er lögð á að sýningarnar fari fram í faglegu umhverfi svo verkin njóti sín sem best. Sérstaða Boreal er fólgin í innsetningum sem settar eru upp í kringum sum verkin, sem veita þeim í senn meiri dýpt og nýja vídd. Hátíðin stendur einnig fyrir fjölbreyttum danstengdum viðburðum og samkomum á sýningartímanum. Ókeypis er inn á alla viðburði. 

Listrænn stjórnandi: Yuliana Palacios.