Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Sunnudaginn 24. apríl kl. 11-12 verður fjölskylduleiðsögn í Listasafninu. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá völdum verkum úr Listasafni ASÍ á sýningunni Gjöfin til íslenzkrar alþýðu.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið í smiðju og að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.