Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Sunnudaginn 27. ágúst kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segja börnum og fullorðnum frá samsýningu norðlenskra myndlistarmanna, Afmæli. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýningarinnar. Leiðsögnin er hluti af Akureyrarvöku og 30 ára afmælishátíð Listasafnins.

Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.