Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Sunnudaginn 28. janúar kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segja börnum og fullorðnum frá sýningu Sigurðar Guðjónssonar, Hulið landslag, og yfirlitssýningu á verkum Kötu saumakonu, Einfaldlega einfalt. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listafólksins.

Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.