Fyrsta Tólf tóna kortér ársins

Laugardaginn 3. mars hefst Tólf tóna kortérið á nýjan leik. Fyrstu tónleikar ársins bera yfirskriftina Ó mig auma! en þar mun Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir frumflytja eigin tónsmíð á selló við ljóð Fríðu Karlsdóttur. Tónleikarnir fara fram kl. 15-15.15 og kl. 16-16.15. Ókeypis aðgangur.

Tólf tóna kortérið er styrkt af Sóknaráætlun Norðurlands eystra.