Málþing um listnám á háskólastigi á Akureyri

Miðvikudaginn 30. mars kl. 14 verður haldið málþing í Listasafninu, sal 11, um listnám á háskólastigi á Akureyri. Lagt er upp með þá hugmynd að koma á nánara samstarfi á milli Háskólans á Akureyri og Listaháskóla Íslands með það fyrir augum að byggja upp listnám á háskólastigi á Akureyri.

Ávörp flytja Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands og Anna Richards, gjörningalistakona. Að loknum framsögum kynnir Arnar Jóhannsson frá RHA fýsileikakönnun sem gerð var á hug framhaldsskólanema á landinu til að stunda listnám á háskólastigi á Akureyri.

Eftir stutt kaffihlé verða flutt ávörp listamanna og að því búnu verða pallborðsumræður með þáttöku framsögumanna og að auki Örnu Valsdóttur, listamanns, og Benedikts Barðasonar, aðstoðarskólastjóra VMA. Að lokum ávarpar Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, þingið.

Fundarstjóri er Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri og í lok málþingsins verður boðið upp á léttar veitingar. Allir velkomnir.