Ný árbók og endurnýjaður samstarfssamningur

Ný árbók og endurnýjaður samstarfssamningur
Hlynur Hallsson og Gunnur Ýr Stefánsdóttir.

Á kynningarfundi sem haldinn var í Listasafninu á Akureyri í gær var dagskrá ársins 2022, ný árbók og komandi starfsár kynnt. Einnig var undirritaður nýr samstarfssamningur við Norðurorku og skrifuðu Hlynur Hallsson, safnstjóri, og Gunnur Ýr Stefánsdóttir, verkefnastjóri, undir samninginn. Árbók safnsins er nú öllum aðgengileg og gjaldfrjáls í anddyri safnsins auk valdra staða á Akureyri og víðar. HÉR má sjá hana í rafrænu formi.

„Eflir barna- og fjölskyldustarf Listasafnsins“

Samningur Listasafnsins og Norðurorku nær til næstu fimm ára og er mikið fagnaðarefni að sögn Hlyns Hallssonar, safnstjóra: „Það gleður okkur mjög að eiga svona góðan styrktaraðila eins og Norðurorku, enda hefur þetta samstarf verið farsælt síðustu árin. Sem fyrr beinist það sérstaklega að barna- og fjölskyldustarfi og með þessum nýja fimm ára samningi gefst okkur svigrúm til þess að gera langtímaáætlanir og efla starfið enn frekar.“

Sýningaárið 2022 hófst síðastliðinn laugardag

Sýningaárið 2022 hófst formlega síðastliðinn laugardag þegar samsýningin Nánd var opnuð. Þar sýna sex alþjóðlegir myndlistarmenn og er athyglinni beint að innri rökfærslum listmálunar sem eru staðsettar, skuldbundnar og innbyggðar. Síðan rekur hver sýningin aðra og á meðal myndlistarmanna ársins eru Gústav Geir Bollason, Kristinn G. Jóhannsson, Auður Lóa Guðnadóttir, Steinunn Gunnlaugsdóttir, Egill Logi Jónasson, Rebekka Kühnis, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverár, Páll Stefánsson og Spessi. Einnig verða fastir liðir á dagskrá eins og A! Gjörningahátíð, Sköpun bernskunnar og nemendasýningar VMA og Myndlistaskólans.

Allt til enda

Þriðjudagsfyrirlestrarnir hófu að nýju göngu sína í síðustu viku og verða áfram stór þáttur í fræðslustarfi Listasafnsins, en þeir eru settir upp í samvinnu við Verkmenntaskólann á Akureyri, Myndlistarfélagið, Menntaskólann á Akureyri og Gilfélagið. Þeir eru sem fyrr haldnir á hverjum þriðjudegi kl. 17-17.40 yfir vetrartímann. Listsmiðjur undir yfirskriftinni Allt til enda verða á dagskrá í mars, apríl og maí undir leiðsögn Jóns Ingibergs Jónsteinssonar, Magnúsar Helgasonar og Þykjó – Sigurbjargar Stefánsdóttur og Ninnu Þórarinsdóttur. Aðrar fjölbreyttar smiðjur verða einnig í boði á árinu.

Listasafnið á Akureyri er í eigu Akureyrarbæjar og starfar í þágu almennings. Rekstrarkostnaður safnsins greiðist úr bæjarsjóði í samræmi við fjárhags- og starfsáætlun ár hvert. Safnið er ekki rekið í hagnaðarskyni. Bæjarráð myndar stjórn Listasafnsins á Akureyri. Listasafnið á Akureyri er viðurkennt safn og fær stuðning frá Safnaráði. Aðrir bakhjarlar eru Norðurorka, Geimstofan, N4, Stefna og Dagskráin.