Ókeypis aðgangur og leiðsögn á sumardaginn fyrsta

Í tilefni Eyfirska safnadagsins verður ókeypis inn á Listasafnið á sumardaginn fyrsta, 20. apríl. Boðið verður upp á leiðsögn og listsmiðju fyrir börn á leikskólaaldri kl. 11-12. Þá mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segja frá sýningunni Sköpun bernskunnar. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýningarinnar. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu. Verkefnið er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri og fleiri spennandi viðburði má finna á barnamenning.is.