Síðasta sýningarhelgi listsmiðju Villa

Framundan er síðasta sýningarhelgi á afrakstri þriðju listsmiðju verkefnisins Sköpun utan línulegrar dagskrár.

Verkefnið felst í að bjóða fjölskyldum að taka þátt í rafrænni listsmiðju þar sem börn fá tækifæri til að skapa sitt eigið listaverk í samvinnu við sína nánustu. Að þessu sinni var það Vilhjálmur B. Bragason, leikari og tónlistarmaður, sem kenndi þátttakendum að semja og myndskreyta sögur. Sýningin stendur til 13. nóvember 2022. Verkefnið er styrkt af SSNE.