Þriðjudagsfyrirlestur: Andrea Weber

Þriðjudagsfyrirlestur: Andrea Weber
Andrea Weber. Mynd: Claudia Goulet-Blais.

Þriðjudaginn 28. febrúar kl. 17-17.40 heldur fransk-þýska myndlistarkonan Andrea Weber Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni How the experience of the Icelandic landscape, and more specifically the sky, has shaped my art work. Aðgangur er ókeypis á fyrirlesturinn sem fer fram á ensku.

Í listsköpun vinnur Andrea mikið með hugmyndir um tíma og rúm og sambandið milli líkama og umhverfis. Einnig vinnur hún út frá abstract málverkum sem gerð eru eftir forskrift er nefnist Weathertranscription, en auk þess gerir hún innsetningar, fremur gjörninga og fleira.

Andrea Weber er menntuð í ljósmyndun frá listaháskólanum í Essen, Þýskalandi, og Beaux Arts í París, Frakklandi. Hún hefur einnig menntun í Qi Gong og myndlistarkennslu. Weber býr og starfar í París, en dvelur um þessar mundir í gestavinnustofu Listasafnsins.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Menntaskólans á Akureyri, og Myndlistarfélagsins á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Einar Sigþórsson, arkitekt, Hyo Jung Bea, myndlistarkona og Stefán Þór Sæmundsson, rithöfundur og íslenskukennari.