Þriðjudagsfyrirlestur: David Molesky

Þriðjudagsfyrirlestur: David Molesky
David Molesky

Þriðjudaginn 23. mars kl. 17 heldur David Molesky síðasta Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni The New Figurative. Í fyrirlestrinum segir hann frá vegferð sinni með endurvakningu hins fígúratíva málverks. Hann rekur það sem hann telur ástæður þess að þessi nálgun í listum hvarf en snéri svo aftur. Einnig ræðir Molesky um listmarkaðinn í New York sem hann er vel kunnugur í gegn um sýningar sínar og blaðamennsku. Pælingar hans um ný viðmið í list-upplifunum, tíðarandann eða tímaskekkjur í listum verða ræddar sem og hvernig þær hafa áhrif á hans eigin listsköpun.  

David Molesky er olíumálari og rithöfundur frá Brooklyn, New York, fæddur í Washington, D.C. Hann lauk BA gráðu frá Kaliforníuháskóla í Berkeley. Nýverið dvaldi hann í listamannavinnustofu á vegum Listasafnsins á Akureyri og mun opna einkasýningu á verkum sínum í Deiglunni 20. mars og í Kaktus 27. mars. Verk hans eru í eigu safna þvert yfir Bandaríkin, en einnig í Evrópu og Asíu.

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem fer fram á ensku. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins á Akureyri og hefst aftur í október næstkomandi.