Þriðjudagsfyrirlestur: Einar Sigþórsson

Þriðjudagsfyrirlestur: Einar Sigþórsson
Einar Sigþórsson. Mynd: Aníta Eldjárn.

Þriðjudaginn 7. mars kl. 17-17.40 heldur Einar Sigþórsson, arkitekt, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Hvað, hvernig og hvers vegna? Aðgangur er ókeypis.

Í fyrirlestrinum mun Einar fjalla um hvers vegna hann valdi arkitektúr sem námsgrein og hvernig hann endaði Arkitektskolen í Aarhus í Danmörku. Einnig mun Einar tala um hvernig námið og skólinn mótuðu hann og hvernig námsárin hafa haft áhrif á það sem hann hefur tekið sér fyrir hendur síðan hann kláraði námið 2017. 

Einar Sigþórsson er fæddur og uppalinn á Akureyri og er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri. Hann útskrifaðist með Bachelor og Master í arkitektúr frá Arkitektskolen í Árósum 2017 og hefur síðan m.a. hannað húsgögn og unnið við skipulagningu á nýjum hverfum í Danmörk. 

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Menntaskólans á Akureyri og Myndlistarfélagsins á Akureyri. Næstu fyrirlestra halda Hyo Jung Bea, myndlistarkona, og Stefán Þór Sæmundsson, rithöfundur og íslenskukennari.