Þriðjudagsfyrirlestur: Eyþór Ingi Jónsson

Þriðjudagsfyrirlestur: Eyþór Ingi Jónsson
Eyþór Ingi Jónsson.

Þriðjudaginn 18. október kl. 17-17.40 heldur Eyþór Ingi Jónsson, organisti, Þriðjudagsfyrirlestur undir yfirskriftinni Canon og Canon. Þar mun hann fjalla um tónlistarferilinn, breytingarnar og tengingar við ljósmyndun. Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn.

Eyþór Ingi Jónsson lauk kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar 1998. Á árunum 1999-2007 nam hann við Tónlistarháskólann í Piteå í Svíþjóð, fyrst við kirkjutónlistardeild og síðar við konsertorganistadeild. Eyþór kennir orgelspuna, orgelleik, kórstjórn og orgelfræði við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands. Hann heldur jafnframt reglulega námskeið og fyrirlestra. Hann hefur haldið hátt í 100 einleikstónleika á Íslandi og erlendis. Einnig hefur hann leikið með fjölda innlendra og erlendra tónlistarmanna. Eyþór starfar nú sem organisti við Akureyrarkirkju og stjórnandi kammerkórsins Hymnodia. Hann var bæjarlistamaður Akureyrar 2011-2012. Meðfram tónlistarstörfum sinnir Eyþór náttúruljósmyndun af miklum krafti. Hann hefur haldið 3 einkasýningar og tekið þátt í nokkrum samsýningum.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Menntaskólans á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Tetsuya Hori, tónskáld, Rebekka Kühnis, myndlistarkona, og Kristinn G. Jóhannsson og Brynhildur Kristinsdóttir, myndlistarfólk.