Þriðjudagsfyrirlestur: Ingunn Elísabet Hreinsdóttir

Þriðjudagsfyrirlestur: Ingunn Elísabet Hreinsdóttir
Ingunn Elísabet Hreinsdóttir.

Þriðjudaginn 15. febrúar kl. 17-17.40 heldur Ingunn Elísabet Hreinsdóttir, dansari og danskennari, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Hlusta. Í fyrirlestrinum fjallar hún um nálgun sína á dansi og að hugsa með líkamanum og upplifa heildræna nálgun. Einnig mun hún tala um að hlusta á sitt innra landslag og byggja á eigin reynslu og færni. Þessi viðfangsefni mun hún flétta inn í danskennsluna og þá áherslupunkta sem hún kýs að nýta sér í kennslu. Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn.

Ingunn Elísabet Hreinsdóttir hefur unnið sem danskennari í grunn-, framhalds- og dansskólum. Hún útskrifaðist frá Listaháskólanum í Stokkhólmi 2018 og lauk samhliða BEd í kennarafræðum, efsta stigi, frá Háskólanum á Akureyri, 2017. Hún útskrifaðist úr meistaranámi í listkennslu í Listaháskóla Íslands 2020 og hlaut viðurkenningu frá Skóla-og frístundaráði Reykjavíkurborgar fyrir meistaraverkefnið sitt, Skapandi dans: Handbók fyrir kennara, sama ár. Handbókin kom út 2021 á vef Menntamálastofnunnar. Hún hefur tekið þátt í List fyrir alla (2018 og 2019), Barnamenningarhátíð (2019) og Listasumri á Akureyri (2019, 2020). Ingunn sat í stjórn Félags íslenskra listdansara 2019-2021. 

Fyrirlestraröðin er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Menntaskólans á Akureyri og Gilfélagsins. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru: Rósa Kristín Júlíusdóttir, myndlistarkona, Margrét Katrín Guttormsdóttir, vöruhönnuður, Tricycle Trauma - Jasmin Dasović og Ivana Pedljo gjörningalistamenn, Vala Fannell leikstjóri, og Aaron Michell, myndlistarmaður.