Þriðjudagsfyrirlestur: Kenny Nguyen

Þriðjudagsfyrirlestur: Kenny Nguyen
Kenny Nguyen.

Þriðjudaginn 11. október kl. 17-17.40 heldur myndlistarmaðurinn Kenny Nguyen Þriðjudagsfyrirlestur undir yfirskriftinni Crossing Boundaries. Þar mun hann fjalla um umbreytingu menningar og efnis í óhlutbundnum list-innsetningum. Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn sem fer fram á ensku.

Kenny Nguyen er fæddur í Suður-Víetnam og er um þessar mundir búsettur í Charlotte í Norður Karólínu í Bandaríkjunum. Listsköpun hans fjallar um hefðbundið og menningarlegt mikilvægi silkis og hárfínan hverfuleika þess sem bæði skúlptúrs og málverks.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistarfélagsins og Menntaskólans á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Eyþór Ingi Jónsson, organisti, Tetsuya Hori, tónskáld, Rebekka Kühnis, myndlistarkona, og Kristinn G. Jóhannsson og Brynhildur Kristinsdóttir, myndlistarfólk.