Tólf tóna kortérið á laugardaginn

Laugardaginn 12. nóvember kl. 15-15.15 og 16-16.15 munu Helena G. Bjarnadóttir, sópran, og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, selló, frumflytja nýtt tónverk, Aquaaria og sjö tilbrigði, eftir Daníel Þorsteinsson í Listasafninu. Tónleikarnir fara fram í sal 04 og eru liður í tónleikaröðinni Tólf tóna kortérið sem unnið er í samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri. Aðgangur er ókeypis.

Verkefnið styrkt af Menningarsjóði Akureyrar og Tónskáldasjóði Rúv/Stefs.