Tólf tóna kortérið: Fimm fyrirbæri í febrúar

Laugardaginn 26. febrúar kl. 15.00-15.15 og kl. 16.00-16.15 frumflytja þau Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir (girnisstrengjaselló) og Brice Sailly (semball) verkið Fimm fyrirbæri í febrúar eftir Steinunni. Tónleikarnir fara fram í sal 04 og eru liður í tónleikaröðinni Tólf tóna kortérið sem unnið er í samstarfi við Tónlistarskólann á Akureyri og er aðgangur ókeypis.