Tólf tóna kortérið hefur göngu sína að nýju

Tólf tóna kortérið hefur göngu sína að nýju
Michael Weaver.

Laugardaginn 1. október kl. 15-15.15 og 16-16.15 mun Tólf tóna kortérið hefja göngu sína að nýju. Þá flytur Michael Weaver spunakennt tónverk Eric Dolphy, Guð blessi barnið, út frá lagi eftir Billie Holiday. Ennfremur flytur Weaver tvær hugleiðingar eftir sjálfan sig um lit og hljóð. Enginn aðgangseyrir. 

Tólf tóna kortérið er styrkt af Menningarsjóði Akureyrar og Tónskáldasjóði Rúv/Stefs.