Umsóknarfrestur framlengdur

Umsóknarfrestur framlengdur
Frá Sumar 2017.

Ákveðið hefur verið að framlengja umsóknarfrest fyrir Takmarkanir – samsýningu norðlenskra myndlistarmanna til og með 10. mars næstkomandi. Dómnefnd velur úr umsóknum listamanna sem búa og/eða starfa á Norðurlandi eða hafa tengingu við svæðið. Að þessu sinni skulu myndlistarmennirnir vinna með ákveðið þema, Takmarkanir, í verkum sínum. Sýningin verður opnuð laugardaginn 29. maí og stendur til 26. september. HÉR má sækja um þátttöku.

Vor/Sumar/Haustsýningar Listasafnsins á Akureyri eru tvíæringur og endurvekur þá góðu hefð að sýna hvað listamenn á svæðinu eru að fást við. Hún verður því fjölbreytt og mun gefa góða innsýn í líflega flóru myndlistar á Akureyri og Norðurlandi.