Vísitasíur tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna

Vísitasíur tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna
Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson.

Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson eru tilnefnd til Íslensku myndlistarverðlaunanna fyrir sýninguna Vísitasíur, sem var opnuð í Listasafninu á Akureyri 25. september 2021 og stóð til 16. janúar síðastliðinn. Aðrir tilnefndir listamenn eru Carl Boutard fyrir sýninguna Gróður jarðar í Listasafni Reykjavíkur, Steingrímur Eyfjörð fyrir Tegundagreining í Listasafni Reykjanesbæjar og Anna Hrund Másdóttir, Ragnheiður Káradóttir og Steinunn Önnudóttir fyrir sýningu þeirra Feigðarós í Kling og bang.

Tilnefningar til hvatningarverðlaunanna fengu Guðrún Tara Sveinsdóttir, myndlistartvíeykið Klāvs Liepiņš og Renāte Feizaka og Lucky 3 hópurinn sem samanstendur af þeim, Dýrfinnu Benitu, Darren Mark og Melanie Ubaldo. 

HÉR má finna frekari upplýsingar um.