Hotel Terminus - síðustu sýningardagar

Framundan eru síðustu dagar sýningar Victors Ocares, Hotel Terminus, sem staðið hefur í Deiglunni síðustu vikurnar en henni lýkur næstkomandi sunnudag. Á sýningunni leikur Victor sér að hugtökum á borð við óvissa og þekking og veltir fyrir sér hvort mörkin þar á milli séu í rauninni jafn skýr og af er látið.

Victor Ocares útskrifaðist úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2013. Listsköpun hans er lituð dulhyggju sem leitar meðal annars fanga í heimspeki og vísindum. Á sýninguni notast hann við margvíslega miðla eins og tónverk, skúltúra og myndverk.

Opnunartími fram að lokun er kl. 12-17 og aðgangur er ókeypis.