Fjölskylduleiðsögn og síendurtekin vandræði

Fjölskylduleiðsögn og síendurtekin vandræði
Vandræðaskáld.

Næstkomandi sunnudag, 6. september, kl 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningu Lilýjar Erlu Adamsdóttur, Skrúðgarður. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið í skemmtilegan leik um sýninguna. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.

Síðar sama dag kl. 15 verða Vandræðaskáld með óhefðbundna leiðsögn fyrir alla aldurshópa um sýningar safnsins. Aðgangur er innifalinn í aðgangseyri á safnið og frítt fyrir handhafa árskorta.