Fjölskylduleiðsögn á sumardaginn fyrsta

Fimmtudaginn 20. apríl, sumardaginn fyrsta, kl. 11-12 verður leiðsögn og listasmiðja fyrir börn á leikskólaaldri í Listasafninu. Þá mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segja börnum á leikskólaaldri frá sýningunni Sköpun bernskunnar. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýningarinnar. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.

Verkefnið er hluti af Barnamenningarhátíð á Akureyri og fleiri spennandi viðburði má finna á barnamenning.is.