Listamannaspjall með Söru Björgu og sýningalok

Listamannaspjall með Söru Björgu og sýningalok
Sara Björg Bjarnadóttir.

Sunnudaginn 13. ágúst kl. 15 verður boðið upp á listamannaspjall með Söru Björgu Bjarnadóttur um sýningu hennar Tvær eilífðir milli 1 og 3. Hlynur Hallsson, safnstjóri, ræðir við Söru um sýninguna og einstaka verk. Aðgöngumiði á safnið gildir á listamannaspjallið.

Þennan sama dag lýkur einnig fimm öðrum sýningum:

Ásmundur Ásmundsson – Myrkvi í sölum 02, 03 og 05,
Inga Lísa Middleton – Hafið á öld mannsins í sal 04,
Steinunn Gunnlaugsdóttir – blóð & heiður á svölum 06
Innan rammans – valin verk fyrir sköpun og fræðslu í sal 07,
Guðjón Gísli Kristinsson – Nýtt af nálinni í sal 09.