Málþing um Ann Noël og Fluxus

Málþing um Ann Noël og Fluxus
Frá málþinginu.

Í tilefni af opnun sýningar Ann Noël, Teikn og tákn, var haldið málþing um Noël og Fluxus-hreyfinguna síðastliðinn sunnudag. Málþinginu var streymt beint á heimasíðu Listasafnsins og á Facebook og er nú aðgengilegt HÉR. Safnaráð styrkti málþingið sérstaklega.

Ann Noël er fædd á Englandi 1944, en hefur verið búsett í Berlín frá 1980. Bakgrunnur hennar er í grafískri hönnun, prenti, ljósmyndun, málun og gjörningum.

Eftir útskrift úr grafískri hönnun 1968, frá Bathlistaakademíunni í Corsham, vann Noël með Hansjörg Mayer í Stuttgart, en hann var einn af fyrstu útgefendum bókverka. Þessi reynsla kom sér vel þegar henni bauðst að vinna sem aðstoðarmaður Dick Higgins, útgefanda hjá The Something Else Press í New York. Þar kynntist hún Emmett Williams (1925-2007), ritstjóra forlagsins og fjölmörgum Fluxus listamönnum. Snemma á níunda áratugnum varð Noël virkur meðlimur í Fluxus hreyfingunni og tók þátt í gjörningahátíðum víða um heim, einkum í samvinnu við eiginmann sinn Emmett Williams. Hún fremur ennþá gjörninga innan Fluxus Art Group. Einnig hefur hún sjálf gefið út mörg af sínum eigin bókverkum í gegnum árin.